Landspítali er á hættustigi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Staðan kl. 9:00
17 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Sex eru óbólusettir. Fjórir eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél (annar þeirra einnig í ECMO hjarta- og lungnavél). Meðalaldur inniliggjandi er 59 ár.
1.156 sjúklingar, þar af 254 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 166 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.