Frá farsóttanefnd:
Landspítali var færður á hættustig síðdegis föstudaginn 5. nóvember 2021 og hefur komið fram í fréttum að til standi að draga úr valkvæðri starfsemi s.s. valkvæðum aðgerðum og göngudeildarþjónustu.
Mánudaginn 8. nóvember verður starfsemin með óbreyttu sniði og fólki er óhætt að mæta í sínar aðgerðir og rannsóknir nema það hafi fengið skilaboð um annað.
Reynt verður eftir föngum að halda uppi þjónustu og áætlanir endurskoðaðar daglega.