Landspítali er á hættustigi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Staðan kl. 9:00
16 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél (annar þeirra er einnig í ECMO hjarta- og lungnavél).
1.108 sjúklingar, þar af 262 börn, í COVID göngudeild spítalans. Nýskráðir þar í gær voru 84.
Tölur verða næst uppfærðar mánudaginn 8. nóvember.