Vinnuverndarvika Landspítala verður 25. til 29. október 2021. Kastljósinu verður beint að starfsmanninum og starfsumhverfinu og þeim öryggisþáttum sem geta haft áhrif á heilsu og líðan í starfi.
Vinnuverndarvikan hefst mánudaginn 25. október á „Degi vinnuverndar á Landspítala“ með dagskrá í Hringsal þar sem Jóhann Ingi Gunnarsson og Hulda Dóra Styrmisdóttir halda erindi.
Hólmfríður Erlingsdóttir verkefnastjóri á mönnunar- og starfsumhverfisdeild Landspítala fer yfir þetta í meðfylgjandi myndskeiði.