Í tilefni af „Bleikum október“, árvekniátaki um brjóstakrabbamein, verður opið hús á Brjóstamiðstöð Landspítala föstudaginn 22. október 2021, kl. 14:30-16:30. Hún er til húsa að Eiríksgötu 5. Á 3. hæð er skimun og greining og á 4. hæð er göngudeild.
Starfsfólkið hvetur velunnara og samstarfsfólk til að líta við, skoða deildirnar og þiggja léttar veitingar.
Brjóstamiðstöð - skimun og greining