Verum til - málþing um brjóstakrabbamein verður miðvikudaginn 20. október 2021, kl. 17:00 til 18:15; á vegum Brjóstaheilla- samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Málþingið verður í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, 3. hæð og í streymi.
Dagskrá
- Setning: Brynja Björk Gunnarsdóttir formaður Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna
- Horfur íslenskra kvenna með brjóstakrabbamein: Helgi Birgisson, yfirlæknir á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins
- Gæðaskráning – hagur krabbameinsgreindra: Hrefna Stefánsdóttir, sérfræðingur á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins
- Brjóstaheilsa á tímamótum – Brjóstakrabbamein, mikilvægi skimunar og reynsla erlendis: Ólöf Kristjana Bjarnadóttir, krabbameinslæknir á Landspítala
- Brjóstaheilsa á tímamótum – Sjúkdómar í brjóstum / Aðgengi að sérfræðingsþjónustu og framtíðarsýn: Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, brjóstaskurðlæknir á Landspítala
- Reynslusaga: Lára Guðrún Jóhönnudóttir
- Umræður
Fundarstjóri: Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja