Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
4 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Einn sjúklingur er á gjörgæslu en ekki í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 61 ár.
Nú eru 449 sjúklingar, þar af 190 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 123 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar föstudaginn 15. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.