Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
5 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Enginn sjúklingur er á gjörgæslu. Meðalaldur inniliggjandi er 68 ár.
Nú eru 453 sjúklingar, þar af 205 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hefur verið 121 innlögn vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar miðvikudaginn 13. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.