Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
8 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af 1 barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru 7. Á gjörgæslu er 1 sjúklingur, sá er í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 53 ár.
Nú eru 370 sjúklingar, þar af 144 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 118 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar miðvikudaginn 6. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.