Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala auglýsir lausa til umsókna tvo rannsóknarstyrki til doktorsnáms tengda Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ).
Styrkirnir eru ætlaðir fyrir rannsóknarverkefni á sviði öldrunarfræða og eru að upphæð 11 milljónir sem greiddar eru samkvæmt framvindu á þriggja ára tímabili.
Frestur til að sækja um rennur út 31. janúar 2022.