Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
9 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af 1 barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru 6. Á gjörgæslu er 3 sjúklingar, engin þeirra í öndunarvél.
Nú eru 345 sjúklingar, þar af 123 börn, í COVID göngudeild spítalans. Enginn er metinn rauður en 1 gulur.
Tölur verða næst uppfærðar miðvikudaginn 29. september.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.