Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
22 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID. 17 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 6 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 5 sjúklingar og þurfa allir öndunarvélastuðning, tveir eru óbólusettir. Fimm gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning og eru tveir þeirra óbólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Alls hafa 87 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fimmtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 946, þar af 226 börn, í COVID göngudeild spítalans sem er sambærilegt og í gær. Tveir sjúklingar eru metnir rauðir og 24 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
13 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 23 í sóttkví A og 116 í sóttkví C
Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.