Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
21 sjúklingur liggur á Landspítala vegna COVID. 17 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 7 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 6 sjúklingar og eru þrír þeirra óbólusettir. Fimm gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning og eru tveir þeirra óbólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Alls hafa 85 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fjórtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 952, þar af 212 börn, í COVID göngudeild spítalans og fækkar talsvert. Engir sjúklingar eru metnir rauðir en 30 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
17 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 17 í sóttkví A og 87 í sóttkví C.
Sérstakar tilkynningar
1. Síðastliðinn föstudag greindist smit hjá starfsmanni á Landakoti. Öflugt viðbragð fór þegar í gang og hafa sýnatökur sjúklinga og annarra starfsmanna reynst neikvæðar. Deildin er lokuð fyrir innlögnum þar til sóttkví verður aflétt við neikvæða sýnatöku á 7 degi frá útsetningu.
2. Gjörgæsludeildir spítalans eru áfram mjög þungar en opnum rýmum hefur verið fjölgað í 14. Eftir sem áður verður rýmum fjölgað enn frekar ef þörf reynist á því.
Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.