Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
25 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 20 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og þriðjungur er óbólusettur. Á gjörgæslu eru 5 sjúklingar og eru 3 þeirra bólusettir. Fjórir gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
Alls hafa 79 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Tólf hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.161, þar af 240 börn í COVID göngudeild spítalans og fækkar nokkuð. Fimm sjúklingar eru metnir rauðir og 48 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
14 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 11 í sóttkví A og 66 í sóttkví C
Meðfylgjandi er ný spá um þróun faraldursins frá Háskóla Íslands og Landspítala - 18. ágúst 2021
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru m.a. birtar á þessari vefsíðu á www.landspitali.is.