Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
30 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 24 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 16 þeirra fullbólusettir en 8 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 6 sjúklingar og eru 4 þeirra bólusettir. Þrír gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 66 ár.
Alls hafa 76 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Ellefu hafa þurft gjörgæslustuðning og sex þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.173, þar af 226 börn, í COVID göngudeild spítalans og fækkar nokkuð. Einn einstaklingur flokkast rauður og 40 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
15 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 21 í sóttkví A og 64 í sóttkví C.