Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 13
31 sjúklingur liggur á Landspítala með COVID. 25 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 18 þeirra fullbólusettir en 7 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 6 sjúklingar og eru 4 þeirra bólusettir. Fjórir gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
Alls hafa 76 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Ellefu hafa þurft gjörgæslustuðning og sex þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.232, þar af 239 börn í COVID göngudeild spítalans og fækkar nokkuð. 37 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
Athugasemdir
1. Áfram er þung staða á gjörgæsludeildum. Bæði vegna fjölda COVID-19 veikra og annarra sem þurfa gjörgæslumeðferð. 40% þessara sjúklinga hafa erlent ríkisfang. Mikil áhersla er á að auka mönnun, einkum lækna og hjúkrunarfræðinga og eru allir sem telja sig geta lagt hönd á plóg hvattir til að hafa samband við stjórnendur þessara eininga. Samstarf er við Sjúkrahúsið á Akureyri vegna þessarar stöðu.
2. Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru m.a. birtar á þessari vefsíðu á www.landspitali.is.