Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 13
30 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 23 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 17 þeirra fullbólusettir en 6 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 7 sjúklingar og eru 4 þeirra bólusettir. Fjórir gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
Alls hafa 73 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Ellefu hafa þurft gjörgæslustuðning og sex þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.294, þar af 246, börn í COVID göngudeild spítalans og fjölgar lítillega. Þrír eru á rauðu og 57 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
Athugasemdir
1. Þung staða er nú á gjörgæsludeildum Landspítala, bæði vegna fjölda COVID-19 veikra og annarra sem þurfa gjörgæslumeðferð. Mikil áhersla er á að auka mönnun, einkum lækna og hjúkrunarfræðinga og eru allir sem telja sig geta lagt hönd á plóg hvattir til að hafa samband við stjórnendur þessara eininga. Samstarf er við Sjúkrahúsið á Akureyri vegna þessarar stöðu.
2. Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa nú aukið getu sína til að taka á móti sjúklingum sem ekki þurfa nauðsynlega að vera á Landspítala og eru flutningar hafnir. Stjórnendur eru hvattir til að skoða vandlega stöðu sjúklinga á sínum einingum m.t.t. mögulegra flutninga.