Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
32 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 24 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 16 þeirra fullbólusettir en 9 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 8 sjúklingar og eru 5 þeirra bólusettir. Fimm gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning og eru 4 þeirra bólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 65 ár.
Alls hafa 70 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um 40% er óbólusettur. Ellefu hafa þurft gjörgæslustuðning og sex þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.280, þar af 253, börn í COVID göngudeild spítalans og hefur fækkað nokkuð. Fimm eru á rauðu og 48 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
15 starfsmenn eru með COVID-19. 18 eru í sóttkví A og 57 sóttkví C.