Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12
26 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID, þar af 2 á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
Alls hafa 55 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um 40% er óbólusett. Sex hafa þurft gjörgæslustuðning og tveir þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.386, þar af 277 börn í COVID göngudeild spítalans og hefur fækkað nokkuð. Einn er á rauðu en 49 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
19 starfsmenn eru með COVID-19. 15 eru í sóttkví A og 69 sóttkví C.