Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
21 sjúklingur liggur á Landspítala með COVID, þar af 2 á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.
Alls hafa 49 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur þeirra er óbólusettur. Fimm hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.447 í COVID göngudeild spítalans og hafa aldrei verið fleiri. Þar af eru 262 börn. Enginn er á rauðu en 44 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.