Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Á bráðamóttökunni er sjúklingum núna forgangsraðað eftir bráðleika og ef kostur er vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt utan opnunartíma heilsugæslu. Á tímum heimsfaraldurs COVID-19 er sérstaklega mikilvægt er að almenningur taki tillit til ofangreindra aðstæðna á bráðamóttöku, ef mögulegt er.
Forstjóri biðlar til starfsfólks í sumarorlofi
Fjórða bylgja faraldurs COVID-19 er í mikilli uppsveiflu í samfélaginu og enn virðist hátindinum ekki náð. Þetta á sér stað á sama tíma og sumarleyfi starfsfólks Landspítala standa yfir. Andspænis þessari ógn þarf nú víðtækt viðbragð á Landspítala þar sem spítalinn starfar á hættustigi og mönnun mjög víða tæp. Af því tilefni hefur forstjóri Landspítala meðal annars biðlað til starfsfólks í sumarorlofi um að huga þegar í stað að því að stytta orlof, ef nokkur kostur er.
Landspítali hefur nú starfað í eitt og hálft ár á ýmsum óvissu- og hættustigum og þurft að krefjast mikils framlags af starfsfólki, sem hefur á löngum köflum starfað undir gríðarlegu álagi við erfiðar og fordæmalausar aðstæður.
Til marks um ástandið hefur fólki í eftirliti á COVID-göngudeildinni fjölgað jafnt og þétt að undanförnu og sömuleiðis inniliggjandi sjúklingum á spítalanum. Á sama tíma er fjöldi starfsfólks í einangrun og sóttkví, sem auðveldar ekki mönnun.
Kvöld- og helgarvakt Læknavaktar
Læknavaktin í Austurveri við Háaleitisbraut er með opna móttöku alla virka daga kl. 17:00-23:30 og um helgar frá kl. 9-23:30.
Símavakt allan sólarhringinn
Vert er að minna á að hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn í símum 1770 og 1700 og sinna þar faglegri símaráðgjöf og vegvísun í heilbrigðiskerfinu fyrir allt landið. Sérfræðingar hjá 1770 meta þörf fyrir þjónustu og koma hlutum í farveg.
19 heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu
Hentugan lista yfir fimmtán heilsugæslustöðvar er að finna hérna:
Einkareknar heilsugæslustöðvar eru að auki starfræktar í fjórum hverfum höfuðborgarsvæðisins og þær eru hérna:
Heilsugæslan Höfða
Heilsugæslan Lágmúla
Heilsugæslan Salahverfi
Heilsugæslan Urðarhvarfi
Þjónustuvefsjá á Heilsuveru
Á Heilsuveru er þjónustuvefsjá þar sem einfalt er að finna næstu heilsugæslustöð og þá þjónustu sem í boði er um land allt. Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar er einnig að finna öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá. Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis.