Frá farsóttanefnd Landspítala 21. júlí 2021 vegna COVID-19:
Á Landspítala liggur nú einn sjúklingur með COVID-19 á smitsjúkdómadeild. Alls eru 220 manns í eftirliti á COVID göngudeild, þar af 15 börn. Fjórir starfsmenn eru í einangrun, fimm eru í sóttkví A og 115 í sóttkví C.
Farsóttanefnd ásamt framkvæmdastjórn og forstöðumönnum ákvað á fundi sínum í hádeginu að halda áfram að auka sóttvarnarráðstafanir á Landspítala í því skyni að draga úr líkum á að smit berist inn í starfsemina.
Nú þegar hafa eftirfarandi ráðstafanir verið gerðar og tekið gildi:
1. Tvöföld skimun bólusettra starfsmanna eftir komu frá útlöndum með 5 daga vinnusóttkví á milli. Óbólusettir fylgja áfram reglum stjórnvalda.
2. Algjör grímuskylda allra starfsmanna og allra þeirra sem eiga erindi inn á spítalann. Börn 12 ára og eldri skulu bera grímu.
Frá og með deginum í dag, 21. júlí 2021, gildir eftirfarandi til viðbótar:
3. Heimsóknir eru áfram á tilgreindum tímum en aðeins einn gestur má koma til sjúklings á hverjum degi. Ef nauðsyn krefur má fylgdarmaður koma með til aðstoðar. Undanþágur vegna sérstakra tilvika eru í höndum stjórnenda viðkomandi deilda eins og verið hefur. Börn undir 12 ára aldri ættu ekki að koma í heimsókn nema í samráði við stjórnendur viðkomandi deildar.
Sjá nánar um heimsóknir hér.
4. Mælst er til þess að sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknadeildir í viðtöl, meðferðir eða rannsóknir komi einir nema brýna nauðsyn beri til og þá fylgi aðeins einn aðstandandi.
5. Leyfi inniliggjandi sjúklinga eru almennt ekki heimiluð nema það sé hluti af útskriftarundirbúningi eða lykilþáttur í endurhæfingu.
- Minnt er á að enn gildir sú meginregla að starfsmaður sem fer í einkennasýntöku vegna COVID-19 skal vera heima þar til niðurstaða liggur fyrir. Ljóst er að nú um hásumarið getur þessi ráðstöfun skapað öryggisógn vegna manneklu. Í þeim tilvikum getur stjórnandi/vaktstjóri ráðfært sig við farsóttanefnd um hvað sé til ráða. Farsóttanefnd er að skoða möguleika á að taka upp hraðpróf og verður nánar greint frá því síðar.
- Farsóttanefnd vill á þessum viðsjárverðu tímum mildilega beina þeim tilmælum til starfsmanna Landspítala að þeir gæti sín vel í samfélaginu; forðist fjölmenn mannamót, skemmtistaði, veislur og viðburði sem hafa oft leitt til mikillar dreifingar smits.
- Nú er rétti tíminn til að búa til sumarkúluna sína og hafa það notalegt með sínum nánustu.