„Nýr Landspítali“ er yfirskrift kynningarblaðs sem Nýr Landspítali ohf. hefur gert og gefið út um Hringbrautarverkefnið. Kynningarblaðinu var dreift með Morgunblaðinu 8. apríl 2021.
Í kynningarblaðinu er fjallað um ýmsar hliðar á þeim miklu framkvæmdum sem nú eru við Hringbraut og birt viðtöl við fjölda fólks. Þar rís nýr meðferðarkjarni Landspítala og ýmsar aðrar byggingar sem er ætlað að hýsa starfsemi Landspítala og Háskóla Íslands í framtíðinni.