Frá farsóttanefnd:
Frá og með 18. mars 2021 þarf ekki að skima fullbólusetta sjúklinga sem flytjast á aðrar stofnanir, heim með þjónustu opinberra aðila eða á Landakot og Vífilsstaði.
Enn um sinn er ætlast til að óbólusettir eða hálfbólusettir einstaklingar séu skimaðir fyrir flutning.
Heimilt er að flytja viðkomandi áður en niðurstaða liggur fyrir ef bið eftir svari veldur flæðishindrun. Slíkt er þó alltaf gert í samráði við og með vitund þeirra sem flytja sjúkling og taka á móti honum.
Gæðaskjal um skimanir inniliggjandi sjúklinga verður endurskoðað og gefið út að nýju í samræmi við ofangreint.