Dag- og göngudeild augnlækninga á Landspítala, við Þorfinnsgötu, verður lokuð frá mánudegi 18. janúar til mánudags 25. janúar 2021 vegna flutninga. Að báðum dögum meðtöldum.
Verið er að breyta Eiríksstöðum, þar sem áður voru skrifstofur Landspítala, í göngudeildahús. Þangað flyst dag- og göngudeild auglækninga og verður deildin opnuð á nýja staðnum þriðjudaginn 26. janúar.
Eiríksstaðir eru við Eiríksgötu, rétt neðan við Hallgrímskirkju, skáhalt þar sem Blóðbankinn var lengi.