Inniliggjandi sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala 11EG fékk jákvætt svar við Covid-19 skimun um kl. 20:00 í kvöld, miðvikudaginn 13. janúar 2021. Deildinni hefur því verið lokað fyrir nýjum innlögnum en er þó í fullri starfsemi.
Um 30 sjúklingar og 30 starfsmenn blóð- og krabbameinslækningadeildar 11EG verða skimaðir snemma í fyrramálið, fimmtudaginn 14. janúar. Um hádegisbil ættu fyrstu niðurstöður úr þeirri skimum að liggja fyrir. Viðkomandi einstaklingar eru ýmist í sóttkví eða vinnusóttkví B þar til þær niðurstöður berast. Samhliða hefur verið gripið til ítrustu sóttvarnaaðgerða á deildinni.
Ekki liggur fyrir hvernig sjúklingurinn smitaðist en þó er talið líklegast að hann hafi verið smitaður þegar við innlögn. Smitrakning stendur yfir. Sjúklingurinn var lagður inn á 11EG síðdegis í gær, þriðjudaginn 12. janúar. Skimun leiddi í ljós virkt Covid-19 smit á níunda tímanum í kvöld. Hann hefur verið fluttur á smitsjúkdómadeild Landspítala A7 í Fossvogi og settur í einangrun vegna veikinda sinna.
Sólarhringur er síðan þurfti að grípa til svipaðs viðbragðs á Landspítala vegna smits sem kom upp á hjartadeild. Þetta eru alvarlegir atburðir í starfsemi spítalans og viðbragðið í kjölfarið því ætíð umfangsmikið og útbreitt. Aðrar deildir munu aðstoða 11EG eftir þörfum og vonir standa til þess að þjónusta spítalans við þennan viðkvæma sjúklingahóp verði órofin og hnökralaus.