Vísindaráð Landspítala auglýsir eftir tilnefningum um heiðursvísindamann Landspítala 2021.
Frestur rennur út 25. febrúar 2021
Tilnefna má þá sem hafa aðalstarf sitt á Landspítala og hafa ekki áður verið heiðraðir með titlinum. Vísindaráð hvetur þá sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna á Landspítala til að senda inn tilnefningar. Heimilt er að tilnefna sjálfan sig og er sérstaklega hvatt til þess.
Við valið er lagt mat á árangur viðkomandi vísindamanns í rannsóknum sínum ásamt frumleika og sjálfstæðis í vísindastörfum hans. Horft er til fjölda birtinga í góðum erlendum fagtímaritum og fjölda tilvísana í þær, fjölda greina þar sem viðkomandi er fyrsti eða síðasti höfundur og fjölda tilvísana í þær greinar, öflunar stórra styrkja hérlendis og erlendis og þátttöku og árangurs í alþjóðlegu samstarfi.
Einnig er litið til framlags til eflingar vísinda og vísindamenningar innan Landspítala. Er það m.a. metið út frá grósku vísindastarfs viðkomandi innan spítalans, greinafjölda sem byggja á rannsóknum hans innan spítalans og fjölda tilvitnana í þær greinar sem og fjölda útskrifaðra meistara- og doktorsnema.
Tilnefningum skal fylgja ferilskrá og ritalisti með staðfestum og hreinsuðum Google Scholar tengli viðkomandi ásamt rökstuðningi fyrir því af hverju ætti að heiðra tilnefndan sem heiðursvísindamann 2021 á Landspítala.
Tilnefningum er skilað með tölvupósti til visindarad@landspitali.is merktum „Heiðursvísindamaður 2021“.