Marel hefur fært vökudeild Barnaspítala Hringsins að gjöf tvær ungbarnavogir sem smíðaðar eru hjá fyrirtækinu.
Það hefur verið siður hjá Marel að færa gjafir á aðventunni sem koma samfélaginu vel og nú 21. desember 2020 mættu starfsmenn þaðan á Barnaspítala Hringsins með tvær ungbarnavogir. Vogir sem þessar hafa reynst mjög nákvæmar, traustar og áreiðanlegar sem er mikilvægt í meðferð og eftirliti hjá viðkvæmum skjólstæðingahópi vökudeildarinnar þar sem lítil frávik geta skipt miklu máli.