Frá farsóttanefnd Landspítala um heimsóknir og leyfi á spítalanum um jól og áramót 2020-2021:
Farsóttanefnd hefur ákveðið að halda heimsóknarfyrirkomulagi óbreyttu næstu vikur.
Á vef spítalans er að finna upplýsingar um fyrirkomulag heimsókna. Leyfi til að fara í heimahús verða almennt ekki veitt.
Farsóttanefnd ber að leita allra leiða til að verjast því að smit berist inn í starfsemi spítalans. Slíkur atburður getur fljótt leitt til sóttkvíar fjölda fólks (starfsmanna og sjúklinga) og veikinda hluta þess.