Landspítali tekur um áramót 2020-2021 í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri að sér skimun fyrir krabbameinum í brjóstum og heilsugæslan um allt land skimun fyrir krabbameinum í leghálsi.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur annast þetta verkefni um áratuga skeið og unnið mikilvægt brautryðjandastarf í baráttunni við krabbamein hér á landi.
Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytis kemur fram að markmið breytinganna sé að færa verklag nær því skipulagi sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum til að tryggja enn frekar öryggi og gæði og þetta sé jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Embætti landlæknis mun fara með stjórn hópleitarinnar og bera ábyrgð á henni, sinna gæðaeftirliti og halda skimunarskrá.