Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd:
1. Hópsmit tengd Landakoti
Ekkert nýtt smit hefur greinst utan hins skilgreinda útsetta hóps starfsmanna og sjúklinga og ekki hefur greinst smit síðustu fjóra sólarhringa á Landakoti. Nýgreind smit meðal starfsmanna í Fossvogi eru í rakningu og eru skimanir vegna þeirra hafnar.
Starfsmenn: 72
Sjúklingar: 67
Alls hópsmit á Landakoti: 139
2. Á Landspítala eru nú:
68 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 147 alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins
- Þar af 4 nú á gjörgæslu og einn í öndunarvél
7 andlát hafa orðið á Landspítala í þriðju bylgju
805 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 111 börn
60 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID19
217 starfsmenn eru í sóttkví (A: 46 B: 74 C:96)