Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavefjum spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
Engar sérstakar tilkynningar frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd í dag.
1. Tölulegar upplýsingar:
Á Landspítala eru nú:
26 sjúklingar inniliggjandi vegna Covid 19, 46 frá upphafi III bylgju
- Þar af 3 á gjörgæslu og 2 í öndunarvél
1.025 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 156 börn
79 starfsmenn eru í sóttkví A
26 starfsmenn eru í einangrun