Alþjóðlegur dagur líknarmeðferðar er laugardaginn 10. október 2020.
Dagurinn er haldinn ár hvert til þess að vekja athygli á líknarmeðferð og fyrir hvað hún stendur.
Um er að ræða heildræna meðferð þar sem leitast er við að mæta líkamlegum, sálrænum, félagslegum og andlegum þörfum fólks með lífsógnandi og/eða langvinna sjúkdóma sem og fjölskyldum þess. Sérhæfð líknarmeðferð er veitt af líknarráðgjafateymi Landspítala, HERU - sérhæfðri líknarheimaþjónustu og á líknardeild Landspítala Kópavogi.
Yfirskrift dagsins í ár er ,,Mín meðferð - Mín líðan".
Áhersla er á að meðferðin sé einstaklingsmiðuð og sniðin að þörfum hvers og eins.
Á næstu dögum verða birtir sérstakir fróðleiksmolar um líknarmeðferð á nýrri Instagram síðu Lífsins - Samtaka um líknarmeðferð.