Árleg uppskeruhátíð vísinda á Landspítala verður í dag, miðvikudaginn 7. október 2020, undir nafninu Vísindi að hausti. Þessi hátíð er venjulega á vorin en var frestað til hausts vegna COVID-19.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður vísindahátíðin aðeins á miðlum Landspítala og engir gestir í Hringsal.
Meðal dagskrárliða er útnefning heiðurslistamanns Landspítala 2020 og ungs vísindamanns spítalans. Einnig verður opnað vefsvæði á www.landspitali.is með veggspjöldum vísindamanna sem við venjulegar aðstæður hefðu verið hangandi á veggjum.