Ragnheiður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á bráðaöldrunarlækingadeild B4.
Ragnheiður lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1997. Auk þess er hún í meistaranámi með áherslu á öldrun og heilbrigði við Háskólann á Akureyri. Lokarannsókn Ragnheiðar er um sjálfsvanrækslu meðal aldraðra.
Ragnheiður hefur starfað á ýmsum deildum Landspítala frá útskrift auk þess starfaði hún sem sölufulltrúi hjá lyfjafyrirtæki í tvö ár. Frá árinu 2009 til 2015 starfaði Ragnheiður í útskriftarteymi á Landspítala. Árið 2015 tók hún við starfi deildarstjóra á bráðaöldrunarlækningadeild til fimm ára og hefur nú verið ráðin til áframhaldandi starfa. Ragnheiður hefur komið að ýmsum gæða- og umbótaverkefnum á vegum Landspítala.
Vefsíða bráðaöldrunarlækningadeildar B4