Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd funda daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavefjum spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
1. Heimsóknir eru nú ekki heimilar á deildir A7, B7 og A6 nema i algjörum undantekningartilvikum í samráði við starfsfólk deildanna.
2. Vakin er athygli á að göngudeild svefndeildar er á A3, ekki B3 eins og misritaðist í tilkynningu í gær.
3. Tölulegar upplýsingar:
Á Landspítala eru nú:
13 sjúklingar inniliggjandi vegna Covid 19
- Þar af 3 á gjörgæslu og tveir í öndunarvél
609 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar
88 starfsmenn eru í sóttkví A
39 starfsmenn eru í einangrun