Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd funda daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavefjum spítalans.
Áhrif á skurðlækningaþjónustu
Ljóst er að einangrun og sóttkví starfsmanna vegna Covid-19 hefur haft áhrif á starfsemi í skurðlækningaþjónustu og hefur aðgerðum verið frestað vegna þessa. Aðgerðum er forgangsraðað þannig að allar brýnar aðgerðir eru framkvæmdar, s.s. krabbameinsaðgerðir og aðrar sem ekki þola bið.
Eins og kunnugt er tekur spítalinn þátt í biðlistaátaki vegna liðskiptaaðgerða en vegna þeirrar stöðu sem upp er komin er hugsanlegt að fresta verði þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar voru um komandi helgi. Endanleg ákvörðun um þetta mun liggja fyrir síðdegis í dag, fimmtudag. Sjúklingar sem bíða þessara aðgerða verða upplýstir um gang mála um leið og niðurstaða liggur fyrir.
Aðrar tilkynningar
1. Í dag hafa 40 starfsmenn á Hringbraut verið boðaðir í skimun v. Covid-19
2. Dregið verður úr starfsemi göngudeilda A3 og B3 til að styrkja mönnun Covid-19 göngudeildar og gert ráð fyrir að sú ráðstöfun gildi fram yfir helgi.
3. Tölulegar upplýsingar:
Á Landspítala eru nú:
1 sjúklingur inniliggjandi vegna Covid-19
357 sjúklingar í eftirliti Covid-19 göngudeildar
176 starfsmenn í sóttkví A
30 starfsmenn í einangrun