Vikan 21-25. september 2020 er helguð vitundarvakningu um byltur og byltuvarnir á Landspítala og í tilefni hennar kynnir byltuvarnarhópur spítalans nýtt gæðaskjal sem lýsir ítarlegri uppvinnslu þverfaglegs teymis þegar sjúklingur leggst inn vegna byltna eða dettur í legu.
Á Landspítala eru aðgerðir í byltuvörnum byggðar á gagnreyndri þekkingu og er vinnulag skráð í gæðaskjöl í gæðahandbók spítalans.