Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttarnefndar Landspítala var í dag, sunnudaginn 20. september 2020, ákveðið að færa spítalann af óvissustigi á hættustig í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala. Upp hafa komið smit meðal starfsmanna sem kallar á sóttkví starfsfólks sem kann að hafa áhrif á starfsemi spítalans. Annars vegar er um að ræða smit í Skaftahlíð 24 þar sem skrifstofur og kennslurými eru til húsa og hins vegar í skurðlækningaþjónustu. Umfangsmiklar skimanir fyrir Covid-19 fara fram vegna þessa í dag og er gert ráð fyrir að ríflega 200 starfsmenn verði í úrvinnslusóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir en hluti þeirra í hefðbundinni sóttkví
Ekki er gert ráð fyrir skerðingu þjónustu við sjúklinga að svo stöddu en unnið er að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.
Eftirfarandi ákvarðanir taka gildi nú þegar:
1. Algjör grímuskylda er á öllum starfsstöðvum Landspítala nema þegar matast er og skal þá halda 2 metra fjarlægðarmörk. Inniliggjandi sjúklingar eru þó undanþegnir grímuskyldu.
2. Alla fundi starfsmanna ber að halda með rafrænum hætti nema brýna nauðsyn beri til annars og gildir þá grímuskylda.
3. Þeir starfsmenn sem geta sinnt störfum sínum að heiman skulu gera það í samráði við sinn næsta yfirmann.
4. Engin leyfi sjúklinga eru heimil.
5. Aðeins einn gestur getur heimsótt sjúkling á dag og allir gestir verða að bera grímu. Heimsóknartímar eru óbreyttir.
Á spítalanum eru nú ríflega 200 sjúklingar í eftirliti á Covid-19 göngudeild og 2 sjúklingar liggja á spítalanum vegna Covid-19 sýkingar.