Evrópska samgönguvikan er árlegt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum og er yfirskriftin 16. til 22 september 2020 „Veljum grænu leiðina“. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota umhverfisvænar samgöngur; almenningssamgöngur, hjóla eða ganga.
Undanfarin ár hefur valkostum til að ferðast milli staða á vistvænan hátt fjölgað til muna sem endurspeglast í auknum fjölda þeirra sem velja að ferðast um með öðrum hætti en einkabílnum. Þannig velja æ fleiri grænu leiðina í sínum daglegu samgöngum og í ár verður sjónum beint sérstaklega að þeirri þróun.
Að þessu sinni verður Samgönguvika sérstaklega áberandi á samfélagsmiðlum þar sem verður efnt til viðburða sem kalla ekki á að fólk safnist saman. Meðal annars mun fólk geta tekið könnun á Netinu undir yfirskriftinni „Hvaða samgöngukrútt ert þú?“ en henni er ætlað að benda á gamansaman hátt á vistvæna valkosti við einkabílinn í daglegum samgöngum. Fjallað verður um hvað samfélög hafa lært um daglegar samgöngur af Covid-19 og samkomubanni og fólki kynnt kort af lykilleiðum hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu svo eitthvað sé nefnt. Þá verður sérstakur Samgönguvikustrætisvagn á ferðinni um höfuðborgarsvæðið í vikunni.
Á Landspítala hefur undanfarin ár verið unnið að því að bæta aðstöðu starfsfólks og bjóða hvata til að efla vistvænar samgöngur starfsmanna:
- Bætt hjóla- og búningsaðstaða – hjólaskýli, öruggir hjólabogar, pumpur og einföld viðgerðasett á stærri stöðum.
- Samgöngustyrkir
- Ódýrari árskort í Strætó
- Rafhlaupahjól fyrir starfsmenn sem hægt er að panta