Stjórn Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2020.
Sjóðurinn styrkir verkefni sem varða skurðmeðferð brjóstakrabbameins á Landspítala og verða umsóknir að taka mið af því.
Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins og skipulagsskrá má nálgast á vefsíðunni www.maggaodds.is.
Upphæð styrks sem sótt er um skal rökstudd. Stjórn ákveður einstaka styrkupphæðir, sem geta numið allt að 1.000.000.- kr á umsókn. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og áskilur sér rétt til að leita eftir frekari upplýsingum en fram kunna að koma í umsókn.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til formanns stjórnar minningarsjóðsins, Hauks Oddssonar, á tölvupóstfang hoddsson@yahoo.com. Umsóknarfrestur rennur út 20. september.