Vakin er athygli á því að heimsóknarbann sem verið hefur í gildi að undanförnu á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi vegna Covid-19 er enn í gildi og óbreytt frá því sem verið hefur.
Jafnframt er vakin athygli á því að í svokölluðum "fæti", neðst á vef Landspítala, www.landspitali.is, er hlekkurinn Heimsóknartímar. Þar er að finna á einum stað reglur um heimsóknir á Landspítala í Covid-19 faraldrinum sem gilda til 31. ágúst 2020 nema annað verði ákveðið.