Ársfundur Landspítala 2020 verður í Hringsal á Landspítala föstudaginn 12. júní, klukkan 14:00 til 16:00. Til stóð að fundurinn væri í maí en honum var frestað vegna Covid-19 faraldursins. Heimsfaraldurinn heldur þó áfram að setja mark sitt á ársfundinn því hann verður að takmörkuðu leyti opinn gestum en hins vegar í beinni útsendingu á vef spítalans.
Fundarstjóri: Bylgja Kærnested deildarstjóri
Dagskrá
1. Svipmyndir úr Covid-19 á Landspítala (myndskeið)
2. Ávarp heilbrigðisráðherra
Svandís Svavarsdóttir
3. Ávarp forstjóra Landspítala
Páll Matthíasson
4. Ársreikningur skýrður
Ólafur Darri Andrason, framkvæmdastjóri fjármála
5. Vísindarannsóknir á Landspítala í kjölfar COVID-19
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
6. Heiðranir starfsfólks
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála
7. Saman gegnum Kófið
Samstarfsverkefni ráðgjafa og sálfræðinga geðþjónustu og skrifstofu mannauðsmála
8. COVID-19 á Landspítala
Hápunktar starfsfólks í heimsfaraldri frekar en lærdómurinn