Þórhildur Höskulsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri speglunardeildar frá 25. maí 2020 til næstu fimm ára.
Speglunardeild rekur starfsemi sína fyrst og fremst á Landspítala Hringbraut en einnig eru speglanir í Fossvogi.
Þórhildur lauk BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2001 og diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands desember 2018. Hún hóf sinn starfsferil sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri en kom til starfa á kvenlækningadeild Landspítala árið 2006.
Þórhildur hefur starfað á speglunardeild frá árinu 2008 og tók fyrst við starfi hjúkrunardeildarstjóra þar árið 2015.