Frá bráðamóttökunni í Fossvogi:
Vegna hættu á yfirálagi á sóttvarnir hefur verið ákveðið að bráðamóttakan á Landspítala Fossvogi sé lokuð gestum nema í sérstökum undantekningartilfellum. Þetta gildir í óákveðinn tíma.
Erfitt er að stjórna fjölda sjúklinga sem leita á bráðamóttöku hverju sinni.
Börn yngri en 18 ára mega hafa með sér einn forráðamann.
Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk okkar ef óskað er eftir sérstökum undanþágum.
Starfsfólk bráðamóttöku hvetur aðstandendur til að nýta sér tæknina og nota símtöl/myndsímtöl til samskipta við sjúklinga sem hjá okkur dvelja.
Einnig er velkomið að hringja á deildina í síma 543 2000 og fá upplýsingar um sjúklinga en gæta þarf að því að sjúklingur skilgreinir sjálfur hver er hans nánasti aðstandandi, við hvern starfsmenn mega hafa samband og hvaða upplýsingar viðkomandi má fá.