Þau tímamót eru nú, 13. maí 2020, í baráttunni við Covid-19 að enginn sjúklingur liggur inn á Landspítala veikur af þessum sjúkdómi. Hins vegar eru 9 sjúklingar á spítalanum sem teljast ekki lengur vera með Covid-19 en eru að ná sér eftir að hafa orðið mikið veikir.
Frá því snemma í mars hafa verið birtar á myndrænan hátt tölulegar upplýsingar upplýsingar um Covid-19 á Landspítala á vef spítalans. Þar sést ferillinn skýrt, hvernig sjúkdómurinn fór hægt af stað, hann nær síðan hámarki um mánaðamót mars og apríl og hefur síðan verið í rénun. Tölurnar hafa verið birtar í reglulegum tilkynningum viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar Landspítala.
Tölulegar upplýsingar um Covid-19 á Landspítala