Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala
6. maí 2020
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna Covid-19 í dag
1. Landspítali hefur verið færður af hættustigi á óvissustig vegna Covid-19. Af þeim ástæðum verður útgáfudögum tölulegra upplýsinga frá spítalanum vegna faraldursins fækkað. Frá byrjun mars hafa viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala birt tölur daglega en á næstunni verða þær birtar sömu daga og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, sóttvarnalæknir og landlæknir halda kynningarfundi sína, þ.e. á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Tölurnar eru birtar á upplýsingavef spítalans.
2. Helstu tölulegar upplýsingar kl. 12:30
a. Sjúklingar á Landspítala
Fjöldi inniliggjandi sjúklinga með staðfest Covid-19 smit
3 (frá upphafi 105)
Þar af á gjörgæslu 0 og 0 í öndunarvél (frá upphafi 27 og 15 í öndunarvél)
Aðrir innlagðir með grun um Covid-19 smit
1
Sjúklingar í sóttkví
4
Útskrifaðir samtals (andlát meðtalin sem og innliggjandi batnað af Covid-19)
102
Inniliggjandi en batnað af Covid-19
9
Látnir
7