Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala
29. apríl 2020
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna Covid-19 í dag
1. Vakin er athygli á því að frá 4. maí er starfsmönnum Landspítala heimilt að vinna á stofnunum utan spítalans og fara milli deilda spítalans. Sjá nánar á Covid-síðu spítalans.
2. Helstu tölulegar upplýsingar kl. 12:30
a. Sjúklingar á Landspítala
Fjöldi inniliggjandi sjúklinga með staðfest Covid-19 smit
6 (frá upphafi 103)
Þar af á gjörgæslu 0 og 0 í öndunarvél (frá upphafi 27 og 15 í öndunarvél)
Aðrir innlagðir með grun um Covid-19 smit
1
Sjúklingar í sóttkví
6
Útskrifaðir samtals (andlát meðtalin sem og innliggjandi batnað af Covid-19)
93
Inniliggjandi en batnað af Covid-19
10
Látnir
7
b. Starfsmenn Landspítala*
c. Göngudeild Covid-19
í eftirliti 129
þar af 6 börn
d. Batnað
1.695
* Hætt er daglegri birtingu um starfsmenn vegna þess að um mjög fáa er að ræða.