Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala
27. apríl 2020
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna Covid-19 í dag
Til stóð að rýmka reglur um viðveru aðstandenda í fæðingarferlinu frá 4. maí. Við nánari athugun kemur í ljós að ekki er hægt að viðhalda 2 metra fjarlægð með góðu móti og því hefur verið ákveðið að halda óbreyttu vinnulagi en verður endurskoðað síðar í maímánuði.
Þetta þýðir að:
- Aðstandandi getur ekki fylgt konu sem þarfnast innlagnar t.d. í gangsetningu en getur komið þegar líður að fæðingu barns.
- Aðstandandi getur ekki fylgt konu sem kemur í bókaðan tíma eða bráðakomu. Þetta á einnig við um komur í meðgönguvernd, gangsetningu og fósturgreiningu.
- Aðstandandi getur ekki fylgt konu í valkeisara en getur komið og verið hjá móður og barni í 1-2 klst á meðgöngu- og sængurlegudeild eftir aðgerð/fæðingu barnsins.
- Aðstandandi getur fylgt konu í fæðingu þegar hún er komin í virka fæðingu og getur verið með henni fram yfir fæðingu barns og hefur möguleika á að dvelja með konu og barni í 1-2 tíma eftir fæðingu.
- Aðstandandi getur ekki fylgt konu í sængurlegu.
- Aðstandandi má ekki undir neinum kringumstæðum koma á spítalann ef hann hefur einkenni um að vera veikur. Mikilvægt er að hann virði 2 metra fjarlægðarmörk frá starfsfólki og fari eftir þeim leiðbeiningum sem hann fær við komu á deildina.
a. Sjúklingar á Landspítala
Fjöldi inniliggjandi sjúklinga með staðfest Covid-19 smit
9 (frá upphafi 103)
Þar af á gjörgæslu 1 og 1 í öndunarvél (frá upphafi 27 og 15 í öndunarvél)
Aðrir innlagðir með grun um Covid-19 smit
1
Sjúklingar í sóttkví
1
Útskrifaðir samtals (andlát meðtalin sem og innliggjandi batnað af Covid-19)
93
Inniliggjandi en batnað af Covid-19
8
Látnir
7
b. Starfsmenn Landspítala*
c. Göngudeild Covid-19
í eftirliti 154
þar af 8 börn
d. Batnað
1.677
* Ákveðið hefur verið að hætta daglegri birtingu um starfsmenn vegna þess að um mjög fáa er að ræða í hvert skipti.