Rjóður, hjúkrunar-, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn, verður í ljósi aðstæðna opnað aftur en fyrst í stað aðeins fyrir takmarkaðar innlagnir.
Ákveðið var að loka Rjóðri þann 26. mars 2020 vegna Covid-19 faraldursins. Æskilegt þótti að börnin sem koma í hvíldarinnlagnir væru heima hjá sér meðan mesta hættan á smiti væri í samfélaginu og eins þurfti að nýta starfsfólk Rjóðurs á öðrum deildum Landspítala.
Leit
Loka